Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, var hinn glaðasti eftir 1-0 sigur gegn Ajax í Meistaradeildinni í kvöld. Liverpool er komið áfram í 16-liða úrslit og búið að vinna sinn riðil.
Úrslit kvöldsins:
Meistaradeildin: Liverpool áfram í 1. sæti - Hvað gerist í B-riðli?
Úrslit kvöldsins:
Meistaradeildin: Liverpool áfram í 1. sæti - Hvað gerist í B-riðli?
„Þetta var mjög erfiður leikur, en strákarnir voru frábærir og gáfu allt sitt í verkefnið. Við hefðum átt að skora fleiri upp úr skyndisóknum, en við erum heilt yfir gríðarlega ánægðir með sigurinn og stigin þrjú," sagði Henderson.
„Þetta var frábær afgreiðsla hjá Curtis Jones. Hann hugsaði að markvörðurinn myndi missa af boltanum og kláraði vel."
„Við vitum að það eru meiðslavandræði hjá okkur, en ég finn fyrir mikilli samheldni í hópnum. Við börðumst fyrir þessum sigri," segir Henderson.
Athugasemdir