Fotbolti.net
25.09.26 - 20:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinnFranski boltinn

Þjóðadeildin: Belgía vann á Ítalíu - Naumur sigur Frakklands

Þjóðadeildin: Belgía vann á Ítalíu - Naumur sigur Frakklands
Canon

Mynd: EPA

Það fóru tveir leikir fram í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld þar sem Ítalía tapaði heimaleik gegn Belgíu á meðan Frakkland lenti í erfiðleikum í Tyrklandi
Ítalir byrjuðu nokkuð vel gegn Belgum en misstu haus eftir 20 mínútur þegar Mika Godts skoraði eftir glæsilegt einstaklingsframtak. Hann lék sér að varnarlínu Ítala og lét báða miðverðina setjast á rassinn áður en hann lagði boltann snyrtilega í netið eftir frábæran sprett með boltann.

Ítalir misstu haus eftir opnunarmarkið og var varnarleikur liðsins hörmulegur. Það var hreinlega með ólíkindum að Belgum hafi ekki tekist að tvöfalda forystuna í fyrri hálfleiknum. Glæsilegar markvörslur frá Gianluigi Donnarumma og hrikaleg klúður sóknarleikmanna Belga komu í veg fyrir seinna markið, svo staðan var 0-1 í leikhlé.

Í síðari hálfleik tóku Ítalir stjórnina en fengu mark í bakið þvert gegn gangi leiksins. Dodi Lukébakio skoraði eftir annað einstaklingsframtak. Belgar komust í skyndisókn og náði Lukébakio að skora með frábæru skoti úr erfiðu færi utan vítateigs eftir mjög gott hlaup með boltann.

Ítalir sköpuðu stórhættulegar stöður en tókst á einhvern ótrúlegan hátt ekki að setja boltann í netið. Senne Lammens varði nokkrum sinnum vel og klúðraði Giorgio Scalvini af tveggja metra færi með að skófla boltanum yfir.

Lærlingum Roberto Mancini tókst ekki að minnka muninn svo lokatölur urðu 0-2, en það voru ýmis jákvæð teikn á lofti. Nokkrir ungir leikmenn stigu sín fyrstu skref með landsliðinu í þessum leik og var frammistaða Ítala í seinni hálfleik frábær.

Stórveldi Frakklands heimsótti þá Tyrkland og var staðan markalaus eftir skemmtilegan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu góð færi til að skora.

Kylian Mbappé náði forystunni snemma í síðari hálfleik eftir vel heppnaða hápressu Frakka. Mbappé fékk boltann einn og óvaldaður innan vítateigs og gerði vel að skora með hnitmiðuðu skoti. Fimm mínútum síðar fór hann sárþjáður af velli.

Tyrkir voru sterkari aðilinn eftir opnunarmarkið og sköpuðu hættu en tókst ekki að skora framhjá Mike Maignan. Undir lokin fékk Ugurcan Cakir, markvörður Tyrkja, beint rautt spjald fyrir að handleika boltann utan vítateigs.

Frakkar unnu því nauman 0-1 sigur í fyrsta leik Zinedine Zidane við stjórnvölinn.

Ítalía 0 - 2 Belgía
0-1 Mika Godts ('20 )
0-2 Dodi Lukebakio ('69 )

Tyrkland 0 - 1 Frakkland
0-1 Kylian Mbappe ('54 )
Rautt spjald: Ugurcan Cakir, Tyrkland ('87)
Þjóðadeildin: Belgía vann á Ítalíu - Naumur sigur Frakklands
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Belgía vann á Ítalíu - Naumur sigur Frakklands
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Belgía vann á Ítalíu - Naumur sigur Frakklands
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Belgía vann á Ítalíu - Naumur sigur Frakklands
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.