25.09.26 - 19:33
Ívan Guðjón Baldursson
EM U21: Sviss rúllaði yfir Lúxemborg

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA
Sviss U21 5 - 0 Lúxemborg U21
1-0 Liam Chipperfield ('14)
2-0 Liam Chipperfield ('17)
3-0 Alessandro Vogt ('34)
4-0 Labinot Bajrami ('82)
5-0 Labinot Bajrami ('90)
1-0 Liam Chipperfield ('14)
2-0 Liam Chipperfield ('17)
3-0 Alessandro Vogt ('34)
4-0 Labinot Bajrami ('82)
5-0 Labinot Bajrami ('90)

TENGT EFNI
U21: Mjög gott stig gegn Frökkum
Svisslendingar eru helstu keppinautar Íslands í undankeppni U21 landsliða fyrir Evrópumótið á næsta ári.
Sviss og Ísland eru í harðri baráttu um annað sæti undanriðilsins og stórbætti Sviss markatöluna sína með 5-0 sigri á heimavelli gegn Lúxemborg rétt í þessu. Markatalan skiptir þó litlu máli þar sem innbyrðisviðureignir gilda meira.
Liam Chipperfield, sonur Scott Chipperfield sem lék 68 landsleiki fyrir Ástralíu á sínum ferli, skoraði tvennu í fyrri hálfleik og leiddu Svisslendingar 3-0 í leikhlé. Staðan hélst 3-0 allt þar til Labinot Bajrami kom inn af bekknum á lokakaflanum og innsiglaði fimm marka stórsigur með tvennu.
Sviss er í öðru sæti riðilsins með 17 stig eftir 8 umferðir, fimm stigum meira heldur en Ísland þegar tvær umferðir eru eftir.
Ísland á enn möguleika á öðru sætinu í ljósi þess að Svisslendingar eiga tvo erfiða útileiki eftir í riðlakeppninni.
Strákarnir okkar taka á móti Sviss á þriðjudaginn og þurfa sigur þar. Þeir geta komið sér í mjög góða stöðu með sigri, þar sem Ísland heimsækir Færeyjar í lokaumferðinni á sama tíma og Sviss heimsækir ógnarsterkt lið Frakklands sem hefur unnið alla heimaleiki sína til þessa í forkeppninni.
Takist Íslandi að leggja Sviss að velli þurfa strákarnir líka að sigra í Færeyjum og treysta á að Frakkar geri í það minnsta jafntefli við Sviss á heimavelli, vilji þeir ná öðru sætinu til að komast í umspil um sæti á EM.
Það má ekki gleyma því að Færeyingar eru með sterkt lið sem hafði betur í fyrri innbyrðisviðureigninni á Íslandi. Tapið óvænta hefur sett Ísland í erfiða stöðu, sem strákarnir geta farið langleiðina með að laga með sigri á þriðjudaginn.
Þess má geta að Færeyjar unnu á útivelli gegn Eistlandi í dag þökk sé tvennu frá Aron Benjaminsen, 19 ára leikmanni Hearts í Skotlandi sem gerði frábæra hluti með Viking í Noregi fyrr á árinu.