Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 01. desember 2022 09:34
Elvar Geir Magnússon
Vlahovic segist ekki hafa sofið hjá konu liðsfélaga síns
Dusan Vlahovic.
Dusan Vlahovic.
Mynd: Getty Images
Dusan Vlahovic, sóknarmaður Juventus og serbneska landsliðsins, segir það algjört bull að hann hafi sofið hjá eiginkonu Predrag Rajkovic varamarkvarðar Serbíu.

Einhverjir fjölmiðlar í Serbíu hafa haldið því fram að það sé ástæða þess að Vlahovic hafi ekki spilað meira á HM í Katar.

„Mér þykir leiðinlegt að þurfa að hefja fréttamannafund á HM með þessum hætti, en ég verð að tala um þetta vegna þess að nafnið mitt er í fréttum sem eru algjört bull," segir Vlahovic.

„Það á að vera óþarfi að tjá sig um eitthvað svona fáránlegt. Fólkinu sem býr til þessar sögur leiðist greinilega og hefur ekkert betra að gera. Að vinna gegn hag landsliðsins virðist vera aðalstarf þessa fólks núna. Það hefur ekki afrekað neitt í lífinu."

„Samheldnin innan hópsins hefur aldrei verið betri. Þessar sögur eru algjörlega fáránlegar. Ég vil verja nafn mitt og mun fara dómsleiðina ef mér finnst það nauðsynlegt."

Ana Cakic, konan sem um er rætt, hefur sjálf tjáð sig á samfélagsmiðlum og lætur fjölmiðla heyra það. Hún og Rajkovic giftu sig 2018 og eiga tvö börn saman.

„Ástæðan fyrir því að ég hef ekki spilað er sú að ég var ekki tilbúinn. Mér líður betur núna og er algjörlega einbeittur á komandi leik," segir Vlahovic en Serbía leikur gegn Sviss í lokaumferð G-riðils annað kvöld.

Serbía verður að vinna og treysta á að Brasilía vinni Kamerún. Ef Serbía og Kamerún vinna ræður markatala úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner