Fotbolti.net
30.10.26 - 10:32
Elvar Geir Magnússon

Emil Atla skrifar undir hjá Fram

Emil Atlason spilar með Fram á næsta tímabili.

Emil Atlason spilar með Fram á næsta tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn reynslumikli Emil Atlason er á leið í Fram en hann skrifar undir samning við félagið í dag. Emil kemur á frjálsri sölu þar sem samningur hans við Stjörnuna er að renna út.

Hjörvar Hafliðason, Dr. Football, greinir frá þessu á X samfélagsmiðlinum.

Þetta er gleðiefni fyrir Framara en mikið hefur verið rætt og ritað um þörf liðsins á að fá inn sóknarmann sem hefur sýnt að hann getur verið iðinn við markaskorun.
Emil, sem er 33 ára, hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020 og var markahæsti leikmaður liðsins á nýafstöðnu tímabili.

„Ég átti mjög gott samtal við Emil. Hann þarf að átta sig á því á hvað hann vill gera sjálfur. Hvar hans metnaður liggur. Hann fékk samningstilboð um mitt sumar og hefur ekki svarað því. Við þurfum að sjá hvað setur,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari Stjörnunnar, í viðtali við Fótbolta.net í vikunni.

Í slúðurpakka Fótbolta.net sem var birtur fyrr í mánuðinum var Emil orðaður við Víking, Fram og KR - þrjú efstu lið deildarinnar.

Heimild: Hjörvar Hafliðason

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.