Fotbolti.net
30.10.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Neville: Stundum hafa menn gott af því að vera reknir

Neville: Stundum hafa menn gott af því að vera reknir
Canon

Mynd: EPA

Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United sem er vinsæll fótboltasérfræðingur í dag, telur að Michael Carrick gæti haft gott af því að vera rekinn úr starfi sínu sem stjóri Man Utd.
Carrick tjáir sig um sína stöðu - Bruno áfram fyrirliði
TENGT EFNI

Carrick tjáir sig um sína stöðu - Bruno áfram fyrirliði

Gengið hefur verið hörmulegt undir stjórn Carrick á upphafi tímabils, eftir að hann náði glæsilegum árangri með liðið á seinni hluta síðustu leiktíðar.

Rauðu djöflarnir eru í 16. sæti á nýju tímabili í ensku úrvalsdeildinni, með 7 stig eftir 8 umferðir. Búist var við að Carrick yrði rekinn eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Bournemouth um síðustu helgi, en hann er enn aðalþjálfari liðsins og verður á hliðarlínunni á morgun þegar lærlingar hans heimsækja spennandi lið Chelsea til London.

„Mig grunar að stjórnin hafi rætt fram og til baka hvort hann ætti að halda starfinu. Þeir hafa ekki fundið nægilega góða lausn og hafa hugsað með sér að það væri einfaldast að leyfa honum að halda áfram í bili," sagði Neville í hlaðvarpsþætti.

„Mig grunar að þessi ákvörðun hafi verið tekin af ýmsum ástæðum. Það hefur ekki verið neitt B-plan til staðar og svo er ekki mikið af kostum sem líta vel út til að taka við starfinu. Það eru tveir raunhæfir kostir lausir þessa stundina (Eddie Howe og Julian Nagelsmann).

„Stundum hafa menn gott af því að vera reknir. Ég veit að ég hafði gott af því þegar ég var hjá Valencia. Ég var ánægður þegar ég frétti að ég væri rekinn þaðan. Það gekk illa og mér leið ömurlega."


Neville ræddi einnig um Bruno Fernandes málið eftir að fyrirliðinn var ónotaður varamaður í tapinu gegn Bournemouth, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa gagnrýnt Michael Carrick í viðtali eftir tap gegn Como.

„Búningsklefar geta verið mjög grimmir staðir þar sem er mikið af tilfinningum og ýmislegt er látið flakka. Ef Bruno Fernandes efast um taktískar ákvarðanir þjálfarans í viðtali eftir 4-1 tap í Como, eftir leik sem hann spilaði eins og niðurfall og eftir að hafa spilað eins og niðurfall síðustu þrjá mánuði á undan, þá er það bara 1% eða 2% af því sem hefur verið sagt í klefanum."

Stuðningsmenn United sungu nafn Carrick eftir tapið gegn Bournemouth en bauluðu stíft á leikmenn liðsins.

Carrick og Neville léku saman hjá Manchester United frá 2006 þar til Neville lagði skóna á hilluna 2011.
Neville: Stundum hafa menn gott af því að vera reknir
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.