Nokkrir þjálfarar hafi neitað Val - „Áhætta hjá Eika"

Eiríkur Raphael Elvy, nýr þjálfari kvennaliðs Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur féll úr Bestu deildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías Guðmundsson, Eiríkur og Hallgrímur Heimisson stýrðu Val á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur leikur í Lengjudeildinni næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiríkur fær það verkefni að koma Völsurum aftur upp.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiríkur Raphael Elvy, nýr þjálfari kvennaliðs Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árangur liðsins í sumar var ekki ásættanlegur og liðið féll úr Bestu deildinni. Matthías Guðmundsson lét af störfum eftir fallið, en Eiríkur á að koma Val aftur upp.
„Ég veit ekki alveg hvað mér finnst enn, þarf aðeins að melta þetta. Hann þekkir leikmennina sem er kostur en á sama tíma er spurning hvort það hefði ekki verið fínt að fá einhvern alveg nýjan til að byrja upp á nýtt," sagði Snæbjört Pálsdóttir.
„Maður skilur þá hlið að hann þekkir leikmennina og það sem maður hefur heyrt um Eika er að hann er vel liðinn af leikmönnum og var líka vinsæll hjá leikmönnum Breiðabliks þegar hann var þar," sagði Arnar Páll Garðarsson.
„Maður heyrir að þrír, fjórir og jafnvel fimm þjálfarar hafi sagt nei við Val sem er áhyggjuefni og segir mikið um stöðuna hjá Val. Maður veltir fyrir sér með stjórnina hvort þeir hafi ekki verið stærra tengslanet og meiri þekkingu. En á sama tíma vonar maður að þetta gangi vel. Þetta er ungur þjálfari með litla reynslu og þeir eru að taka sénsinn á honum. Það er gaman að sjá nýja þjálfara fá tækifæri hjá jafn stóru félagi og Val. Ég vona innilega að þetta gangi," sagði Arnar jafnframt og benti á að aðstoðarþjálfarinn, Sverrir Kristinsson, væri líka mjög reynslulítill.
„Maður bjóst við einhverju nafni, alvöru yfirlýsingu."
Er þetta ekki spennandi gigg?
Valur féll úr Bestu deildinni í sumar en samt sem áður er þetta stórt félag með mikla sögu.
„Maður bjóst við einhverju nafni, alvöru yfirlýsingu," segir Arnar.
Er þetta ekki spennandi gigg?
„Ég held að þetta geti verið erfitt. Annað hvort er þetta geggjað afrek á ferilskránni eða þá að þetta verður ekki gott. Ég veit ekki hversu margir leikmenn eru með sterkar taugar til Vals, hversu margar þeirra ætla að vera þarna áfram," sagði Snæbjört. „Hann þarf virkilega að selja þeim og öðrum leikmönnum það að Valur ætli að fara upp og vera stórt lið."
„Mér finnst þetta vera þannig séð áhætta hjá Eika. Hann er búinn að falla með liðinu sem aðstoðarþjálfari. Ég held að hann hafi verið með stórt hlutverk inn í þessu þjálfarateymi. Segjum að hann fari ekki upp með Val, þá er hann líka þjálfarinn sem fór ekki upp með liðið. Hann er sjálfur að taka massíva áhættu. Hann hlýtur að vita eitthvað meira um hvað er að gerast, hvaða leikmenn verða áfram og svona. Það væri skrítið að taka við þessu liði og það er ekki búið að segja við hann að þau ætli upp," sagði Arnar og bætti við:
„Hann er að taka áhættu en ég vona að það gangi."
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.

Valur féll úr Bestu deildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías Guðmundsson, Eiríkur og Hallgrímur Heimisson stýrðu Val á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur leikur í Lengjudeildinni næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiríkur fær það verkefni að koma Völsurum aftur upp.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
