02.01.15 - 16:48
Elvar Geir Magnússon
Berglind Björg í Fylki (Staðfest)

Þóra Helgadóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Berglind Björg og Jörundur Áki Sveinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Framherjinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur skrifað undir samning við Fylki en þetta var tilkynnt í Árbænum rétt í þessu.
Berglind hefur undanfarin tvö ár leikið með Breiðabliki en þar hóf hún einmitt meistaraflokksferil sinn áður en hún gekk í raðir ÍBV þar sem hún lék tvö tímabil.

Hún hefur ekki getað spilað heil tímabil með Breiðabliki þar sem hún hefur dvalið í Bandaríkjunum þar sem hún hefur verið í námi og spilað í háskólaboltanum.
Berglind er fædd 1992 og á sjö A-landsleiki en allir komu þeir 2010-11. Viðtal við hana kemur inn á Fótbolta.net á eftir.