Fotbolti.net
02.01.15 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Gerrard yfirgefur Liverpool í sumar (Staðfest)

Gerrard er á förum.

Gerrard er á förum.

Canon

Mynd: Getty Images

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, hefur staðfest að hann muni yfirgefa herbúðir félagsins í sumar.

Hinn 34 ára gamli Gerrard verður samningslaus í sumar og þá ætlar hann að róa á önnur mið.

Gerrard ætlar í lið utan Englands en líklegast er að hann fari í MLS-deildina í Bandaríkjunum.
,,Ég mun ekki spila með samkeppnisliði og mun því ekki mæta Liverpool,\" sagði Gerrard.

Samtals hefur Gerrard spilað 695 leiki með Liverpool en hann hefur verið fyrirliði liðsins síðan 2003.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.