Fotbolti.net
02.01.15 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Swansea fær ungan leikmann frá Exeter (Staðfest)

Matt Grimes með knöttinn.

Matt Grimes með knöttinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur keypt enska unglingalandsliðsmanninn Matt Grimes frá Exeter City sem leikur í ensku C-deildinni.

Talið er að Swansea borgi 1,75 milljón punda fyrir Grimes sem er 19 ára gamall.
Hann verður löglegur fyrir leik Swansea gegn West Ham þann 10. janúar.

Grimes er miðjumaður og hefur leikið um 60 leiki fyrir aðallið Exeter en hann hefur verið í herbúðum félagsins frá 10 ára aldri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.