Fotbolti.net
02.02.15 - 23:18
Ívan Guðjón Baldursson

Aron Einar og félagar fá tvo lánsmenn frá Everton (Staðfest)

McAleny í Evrópudeildarleik gegn Ragnari Sigurðssyni og félögum í Krasnodar.

McAleny í Evrópudeildarleik gegn Ragnari Sigurðssyni og félögum í Krasnodar.

Canon

Mynd: Getty Images

Cardiff City krækti sér í tvo lánsmenn frá Everton á lokamínútum félagsskiptagluggans.

Annar þeirra er 22 ára sóknarmaður sem heitir Conor McAleny en hinn heitir Matthew Kennedy og er aðeins 20 ára gamall.
Kennedy hefur leikið fyrir öll yngri landslið Skota og spilar sem kantmaður. Hann hefur verið að spila reglulega hér og þar á Bretlandi en hefur ekki enn fengið tækifærið með Everton í ensku Úrvalsdeildinni.

McAleny á hins vegar tvo deildarleiki að baki fyrir Everton þar sem hann kom inná sem varamaður gegn Arsenal og Norwich fyrir þremur árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.