02.02.15 - 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
Barry Bannan til Eiðs Smára og félaga í Bolton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Barry Bannan er genginn til liðs við Eið Smára Guðjohnsen, Emile Heskey og félaga í Bolton Wanderers.
Bolton er um miðja Championship deild og verður Bannan í herbúðum félagsins á lánssamning út tímabilið.

Bannan kemur á láni frá Crystal Palace þar sem hann hefur aðeins spilað 13 deildarleiki á einu og hálfu ári.
Bannan er 25 ára gamall Skoti sem var hjá Aston Villa í fimm ár og spilaði þar yfir 60 deildarleiki. Á tíma sínum hjá Villa var Bannan lánaður til Derby County, Blackpool og Leeds United.