Fotbolti.net
02.02.15 - 23:56
Ívan Guðjón Baldursson

Celtic kaupir tvo leikmenn frá Dundee (Staðfest)

Celtic kaupir tvo leikmenn frá Dundee (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gary Mackay-Steven og Stuart Armstrong eru komnir til Celtic á rétt tæpar 2 og hálfa milljón punda.

Báðir koma þeir frá Dundee United sem er í fjórða sæti skosku deildarinnar, sex stigum frá toppliði Celtic sem á leik til góða.
Mackay-Steven er 24 ára kantmaður sem hefur skorað 21 mark í 110 deildarleikjum fyrir Dundee á meðan Armstrong er 22 ára gamall miðjumaður sem á 126 deildarleiki að baki og kostar megnið af kaupverðinu, eða um 2 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.