02.02.15 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Chung-Yong til Crystal Palace (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Crystal Palace er búið að tryggja sér Lee Chung-Yong á rúmlega eina milljón punda.
Chung-Yong er 26 ára kantmaður sem kemur til félagsins frá Bolton þar sem hann hefur verið síðan 2009.

Hjá Bolton lék Chung-Yong 176 deildarleiki og skoraði í tíunda hverjum leik.
Kantmaðurinn er einn leikjahæsti maður núverandi landsliðs Suður-Kóreu með 65 leiki að baki og var í lykilhlutverki þegar liðið endaði í 2. sæti Asíumótsins.
Chung-Yong skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Palace sem er fjórum stigum frá fallsæti í Úrvalsdeildinni.