02.02.15 - 18:44
Elvar Geir Magnússon
Cuadrado til Chelsea (Staðfest)


Mynd: Heimasíða Chelsea


Mynd: Heimasíða Chelsea
Juan Cuadrado er orðinn leikmaður Chelsea en Lundúnafélagið hefur staðfest þetta á heimasíðu sinni.
Þessi 26 ára leikmaður hefur skrifað undir samning til fjögurra og hálfs árs.
Þessi 26 ára leikmaður hefur skrifað undir samning til fjögurra og hálfs árs.
Cuadrado segir við heimasíðu Chelsea að hann sé í skýjunum og draumur sé að rætast en þessi kólumbíski leikmaður var keyptur frá Fiorentina á rúmar 26 milljónir punda.
Cuadrado spilar oftast í holunni en getur einnig leikið á báðum vængjum.
Cuadrado spilar oftast í holunni en getur einnig leikið á báðum vængjum.
