02.02.15 - 19:02
Ívan Guðjón Baldursson
Davide Santon lánaður til Inter (Staðfest)

Santon getur bætt við þá 40 deildarleiki sem hann á að baki fyrir Inter. Ítalinn kom 82 sinnum við sögu í ensku deildinni með Newcastle.

Mynd: Getty Images

Ítalski bakvörðurinn Davide Santon er kominn til Inter frá Newcastle United.
Bæði Inter og Newcastle halda því fram að um lánssamning sé að ræða en opinber vefsíða ítölsku Serie A deildarinnar segir ítalska félagið hafa keypt varnarmanninn.

Mikill ruglingur er í gangi með félagsskiptin þar sem kærasta Santon birti færslu á Twitter sem hún eyddi skömmu síðar.
,,Þetta er ekki aðeins lánssamningur, heldur lánssamningur með kaupskyldu fyrir Inter,\" skrifaði kærasta Ítalans og var mjög ósátt með hegðun Newcastle í málinu.
Santon ólst upp hjá Inter en var keyptur til Newcastle árið 2011 og bjóst aldrei við að fara aftur til síns gamla félags samkvæmt Facebook færslu sem hann birti fyrir skömmu.