Fotbolti.net
02.02.15 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Djuricic til Southampton (Staðfest)

Djuricic til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 23 ára gamli Filip Djuricic er búinn að skrifa undir lánssamning við Southampton.

Djuricic er sóknartengiliður sem hefur leikið 11 deildarleiki fyrir Benfica frá komu sinni árið 2013.
Djuricic verður hjá Southampton út tímabilið eftir að hafa verið hjá Mainz á láni fyrri hluta tímabilsins, þar sem hann lék 11 deildarleiki.

Serbinn gerði garðinn frægan ásamt Alfreði Finnbogasyni hjá Heerenveen og skoraði 20 mörk í 99 deildarleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.