02.02.15 - 18:20
Elvar Geir Magnússon
Jeppe Hansen aftur í Stjörnuna (Staðfest)

Jeppe í leik gegn Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jeppe í leik gegn Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur gengið frá kaupum á danska framherjanum Jeppe Hansen frá Fredericia í dönsku B-deildinni. Skrifaði hann undir samning til tveggja ára.
Jeppe lék með Stjörnunni síðastliðið sumar en hann skoraði 6 mörk í 9 leikjum í Pepsi deildinni fyrir félagið áður en hann gekk til liðs við Fredericia.
„Ljóst er að Jeppe er mikill fengur fyrir Stjörnuna en þessi skemmtilegi leikmaður vann sér sess í hjörtum Stjörnumanna með glaðlegri framkomu og góðri spilamennsku í sumar,\" segir í tilkynningu frá Stjörnunni.
Jeppe hefur heimsótt Stjörnuna af og til frá því að hann yfirgaf félagið í sumar en hann kom til dæmis á lokaleik félagsins í deildinni þar sem hann fagnaði Íslandsmeistaratittlinum með Stjörnunni eftir vægast sagt dramatískan leik við FH.