Fotbolti.net
02.02.15 - 20:24
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Mohamed Salah til Fiorentina (Staðfest)

Mohamed Salah til Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juan Cuadrado kom til Chelsea fyrr í kvöld og er Mohamed Salah, kantmaður Chelsea, farinn til Fiorentina á lánssamning út tímabilið.

Chelsea mun greiða laun Salah hjá ítalska félaginu fyrstu sex mánuðina og svo getur Fiorentina borgað 1 milljón evra til að framlengja lánssamninginn um ár.
Chelsea borgaði um 11 milljónir punda þegar félagið keypti Salah frá Basel síðasta sumar og hefur leikmaðurinn komið við sögu í 13 deildarleikjum, oft sem varamaður, og skorað í þeim tvö mörk.

Salah á 35 landsleiki að baki fyrir Egyptaland og hefur skorað 20 mörk sem er talið magnað afrek á landsliðsstigi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.