02.02.15 - 23:39
Ívan Guðjón Baldursson
Newcastle lánar fimm leikmenn til Rangers (Staðfest)

Gael Bigirimana er kominn til Rangers.

Mynd: Getty Images

Gael Bigirimana er kominn til Rangers.

Mynd: Getty Images
Mike Ashley, eigandi Newcastle, hefur lengi verið að daðra við skoska knattspyrnufélagið Rangers og lánaði hann fimm leikmenn til félagsins á lokadegi félagsskiptagluggans.
Þeir Gaël Bigirimana, Kevin Mbabu, Shane Ferguson, Remie Streete og Haris Vučkić eru allir komnir til félagsins á lánssamning út tímabilið.

Leikmennirnir eru allir kringum tvítugt og hafa þrír þeirra spilað með aðalliði Newcastle.
Mbabu og Streete eru tvítugir varnarmenn sem hafa aldrei spilað deildarleik fyrir Newcastle en Vuckic og Bigirimana eru miðjumenn sem hafa spilað samanlagt 20 deildarleiki fyrir félagið. Þá á Shane Ferguson 23 leiki að baki en hann er 23 ára gamall vinstri bakvörður sem getur líka spilað á kantinum.
Leikmennirnir fimm munu hjálpa Rangers í umspilsbaráttunni í Championship deild Skotlands. Félagið er næstum því komið aftur í efstu deild skoska boltans.