02.02.15 - 20:51
Ívan Guðjón Baldursson
Rosi til Fiorentina - Tekur við af Cuadrado (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Aleandro Rosi, 27 ára gamall kantmaður Genoa, hefur verið lánaður til Fiorentina út tímabilið og á að koma í stað Juan Cuadrado sem var seldur til Chelsea.
Rosi á 74 deildarleiki að baki fyrir Roma en hefur síðan þá ekki náð að festa sig í sessi neinsstaðar nema í eitt og hálft tímabil hjá Parma.
Rosi á 74 deildarleiki að baki fyrir Roma en hefur síðan þá ekki náð að festa sig í sessi neinsstaðar nema í eitt og hálft tímabil hjá Parma.
Rosi var keyptur til Genoa í sumar en hefur aðeins spilað tvo deildarleiki á góðu tímabili félagsins sem er í harðri evrópudeildarbaráttu við Fiorentina.
Rosi getur spilað alls staðar á hægri vængnum og mun berjast við Mohamed Salah, Mattia Cassani og Joaquin um byrjunarliðssæti.
Rosi getur spilað alls staðar á hægri vængnum og mun berjast við Mohamed Salah, Mattia Cassani og Joaquin um byrjunarliðssæti.
