02.02.15 - 23:04
Ívan Guðjón Baldursson
Ryan Bertrand keyptur til Southampton (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Southampton er búið að kaupa vinstri bakvörðinn Ryan Bertrand, sem getur þó einnig spilað á kantinum.
Bertrand hefur verið gífurlega mikilvægur hlekkur í geysisterku vörn Southampton sem hefur aðeins hleypt 17 mörkum í gegnum sig á tímabilinu.
Bertrand hefur verið gífurlega mikilvægur hlekkur í geysisterku vörn Southampton sem hefur aðeins hleypt 17 mörkum í gegnum sig á tímabilinu.
Bertrand var lánaður til félagsins frá Chelsea síðasta sumar en hefur nú verið keyptur til félagsins og skrifar undir samning þar til í júní 2019.
Daily Mail greinir frá því að kaupverðið er 10 milljónir punda.
Daily Mail greinir frá því að kaupverðið er 10 milljónir punda.
