Fotbolti.net
02.02.15 - 21:15
Magnús Már Einarsson

Sverrir Ingi í Lokeren (Staðfest)

Sverrir Ingi í Lokeren (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Ingi Ingason hefur gengið til liðs við belgíska félagið Lokeren en hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning í kvöld.

Sverrir kemur til Lokeren eftir að hafa leikið vel með Viking í Noregi á síðasta tímabili.

,,Ég er gríðarlega ánægður með að þetta hafi gengið í gegn. Það eru bjartir tímar framundan,\" sagði Sverrir við Fótbolta.net í kvöld.
Hjá Lokeren á Sverrir að fylla skarð Alexander Scholz sem er kominn til Standard Liege en íslenskir fótboltaáhugamenn þekkja til Scholz síðan hann lék með Stjörnunni árið 2012.

Sverrir Ingi er 21 árs gamall en hann er uppalinn hjá Breiðabliki.

Lengra viðtal við Sverri birtist á Fótbolta.net innan tíðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.