Fotbolti.net
02.02.15 - 23:42
Ívan Guðjón Baldursson

Tim Cahill kominn til Shanghai Shenhua (Staðfest)

Tim Cahill kominn til Shanghai Shenhua (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ástralski miðjumaðurinn Tim Cahill hefur rift samning sínum við New York Red Bulls í bandarísku MLS deildinni.

Cahill kveður New York á jákvæðu nótunum eftir að hafa fengið tilboð frá liðum víðsvegar um heiminn.
Cahill gerði gott mót með Ástralíu í Asíubikarnum þar sem hann skoraði bæði mörk liðsins í 8-liða úrslitum gegn Kína og var varafyrirliði landsliðsins sem lagði Suður-Kóreu í úrslitaleiknum.

Cahill fékk tilboð frá liðum á Englandi, Katar, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Kína.

Ástralinn valdi Shanghai Shenhua í Kína, fyrrverandi félag Didier Drogba, en þar mun hann meðal annars mæta Viðari Erni Kjartanssyni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.