Fotbolti.net
02.02.15 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tom Ince lánaður til Derby (Staðfest)

Tom Ince lánaður til Derby (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kantmaðurinn Tom Ince verður á láni hjá Championship liði Derby County út tímabilið.

Ince hefur ekki riðið feitum hesti síðan hann fór frá Blackpool og spilaði aðeins 7 deildarleiki fyrir Hull City áður en hann var lánaður til Nottingham Forest.
Hjá Nottingham Forest fékk Ince lítið að spila en nú hefur hann verið lánaður til Derby sem er í toppbaráttu Championship deildarinnar.

Thomas Ince er sonur Paul Ince, fyrrverandi landsliðsfyrirliða Englands og leikmanns Liverpool og Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.