02.02.15 - 23:24
Ívan Guðjón Baldursson
West Brom krækir í Fletcher en ekki Cole (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Darren Flethcer kemur til West Bromwich Albion á frjálsri sölu frá Manchester United, en samningur Fletcher við Rauðu djöflanna hefði runnið út í sumar.
Fletcher verður sterk viðbót við fallbaráttulið West Brom enda er hann fyrirliði skoska landsliðsins og gífurlega leikreyndur eftir næstum því tíu ár hjá Man Utd.

Fletcher er 31 árs gamall varnartengiliður sem mun hjálpa West Brom að rétta úr kútnum, enda er liðið aðeins þremur stigum frá fallsæti.
West Brom reyndi einnig að fá sóknarmanninn Carlton Cole frá West Ham en þau félagsskipti gengu ekki í gegn þar sem Hamrarnir fengu ekki Emmanuel Adebayor frá Tottenham.