Fotbolti.net
02.02.15 - 17:24
Elvar Geir Magnússon

Wilfried Zaha til Crystal Palace (Staðfest)

Zaha er kominn í eigu Crystal Palace á ný.

Zaha er kominn í eigu Crystal Palace á ný.

Canon

Mynd: Getty Images

Wilfried Zaha hefur gengið í raðir Crystal Palace frá Manchester United en kaupverðið var ekki gefið upp.

Samningur hans við Palace er til fimm og hálfs árs.
Zaha spilaði aðeins fjóra leiki fyrir United og kostaði 15 milljónir punda. Hann var síðasti leikmaðurinn sem Sir Alex Ferguson keypti til United og náði ekki að finna sig á Old Trafford.

Zaha hóf meistaraflokksferil sinn með Palace 2010.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.