Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 02. febrúar 2023 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Lokonga: Ekki auðvelt að yfirgefa Arsenal
Mynd: EPA
Albert Sambi Lokonga, leikmaður Arsenal, gekk til liðs við Crystal Palace á láni út tímabilið undir lok gluggans en hann átti erfitt með að kyngja þeirri ákvörðun.

Lokonga spilaði fimmtán leiki með Arsenal fyrri hluta tímabilsins og byrjaði þá alla leiki liðsins í Evrópudeildinni.

Hann hefur verið í aukahlutverki á þessu tímabili í ensku úrvalsdeildinni og aðeins byrjað tvo leiki en Crystal Palace sóttist eftir því að fá hann á gluggadegi og þurfti þá Lokonga að taka erfiða ákvörðun.

„Það var ekki auðveld ákvörðun að yfirgefa Arsenal því eins og þú sérð þá er liðið á toppnum í deildinni, en það mikilvægasta fyrir mig var traustið frá Patrick Vieira,“ sagði Lokonga.

Palace fær ekki kauprétt á þessum 23 ára gamli miðjumanni.
Athugasemdir
banner
banner
banner