Ítalskir fjölmiðlar segja að ekkert verði af kaupum AC Milan á franska sóknarmanninum Jean-Philippe Mateta þar sem hann hafi fallið á læknisskoðun.
Franski landslismaðurinn vill yfirgefa Crystal Palace og félagið hafði samþykkt að selja hann til AC Milan fyrir um 30 milljónir punda.
Franski landslismaðurinn vill yfirgefa Crystal Palace og félagið hafði samþykkt að selja hann til AC Milan fyrir um 30 milljónir punda.
Spurning er hvaða áhrif þetta mun hafa en Sami Mokbel, fréttamaður BBC, segir að þrátt fyrir fréttirnar af Mateta þá stefni Palace að því að klára kaup á Jörgen Strand Larsen.
Wolves samþykkti tilboð Palace í Strand Larsen sem Palace hafði hugsað sér að fá til að fylla skarð Mateta.
Úlfarnir hafa þá verið að vinna í að fá Adam Armstrong (Southampton) og Che Adams (Torino).
Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.
Athugasemdir



