Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Carragher: Liverpool þarf varnarmann strax í dag
Mynd: EPA
„Ég er mjög ánægður að Liverpool sé að búið að fá leikmann í miðvörðinn," segir Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, á Sky Sports. Hann tekur undir með Paul Merson sem skilur ekkert í því að Liverpool fái Jacquet ekki strax til sín fá Rennes.

„En Liverpool þarf styrkingu í vörnina strax í dag."

„Það lítur út fyrir að Ibrahima Konate fari annað í sumar, hann hefur ekki skrifað undir til þessa. Þeir eru að fá ungan miðvörð fyrir framtíðina (í Jacquet). Því miður sleit Giovanni Leoni, sem keyptur var síðasta sumar, krossband."

„Ég væri til í því að Liverpool myndi fá inn annan varnarmann í dag því þeir þurfa einn sem hægt er að nota á þessu tímabili,"
segir Carragher.

Auk þess að vera þunnir í hjarta varnarinnar hefur verið mikið bras á hægri bakvarðar stöðunni þar sem Jeremie Frimpong og Conor Bradley hafa glímt við meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner
banner