Trent áfram hjá Real Madrid - Arsenal á eftir Alvarez - Bayern og Liverpool berjast um Diomande
   lau 24. janúar 2026 18:13
Ívan Guðjón Baldursson
Jakob skoraði fyrir aðallið Lyngby
Mynd: Lyngby
Lyngby 3 - 0 Mjallby
1-0 Simon Colyn
2-0 Bror Blume
3-0 Jakob Gunnar Sigurðsson

Hinn 18 ára gamli Jakob Gunnar Sigurðsson fékk að spreyta sig í æfingaleik með Lyngby í dag og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Lyngby mætti Mjällby frá Svíþjóð og skóp þægilegan þriggja marka sigur þar sem Jakob Gunnar skoraði þriðja og síðasta mark leiksins.

Jakob hefur verið að raða inn mörkum fyrir U19 lið Lyngby en hann er hjá félaginu á láni frá KR. Hann er með 10 mörk í 13 leikjum í U19 deildinni í Danmörku.
Athugasemdir
banner
banner