02.03.17 - 23:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Bandarískur leikmaður til kvennaliðs Hauka (Staðfest)

Vienne við undirskriftina

Mynd: Haukar

Vienne við undirskriftina

Mynd: Haukar

Miðjumaðurinn Vienne Behnke hefur skrifað undir samning við Hauka og mun spila með liðinu í Pepsi deild kvenna í sumar.
Vienne er 23 ára og kemur frá Bandaríkjunum. Árið 2016 spilaði hún með Chicago Red Stars Reserve í næst efstu deild bandaríska kvennaboltans. Þar spilaði hún alla leiki liðsins og átti stóran þátt í að liðið komst í undanúrslit en þar féll liðið úr leik gegn núverandi meisturunum.
Vienne spilaði með University of Wisconsin-Milwaukee í bandaríska háskólaboltanum og spilaði hún 65 leiki fyrir skólann. Liðið spilaði í efstu deild háskólaboltans og vann þrjá deildartitla í röð og komst þrisvar sinnum í úrslit háskólaboltans yfir allt landið.
„Ég er mjög spennt að spila með Haukum í Pepsi deildinni og að öðlast reynslu á Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem ég spila utan Bandaríkjanna,\" segir Vienne en þess má geta að hún er með mastersgráðu í sálfræði og gæti það reynst Haukastúlkum vel í sumar.