02.03.17 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Podolski fer til Japan í sumar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýski framherjinn Lukas Podolski hefur staðfest að hann ætli að ganga í raðir Vissel Kobe í Japan í sumar.
Hinn 31 árs gamli Podolski hefur undanfarið eitt og hálft ár leikið með Galatasaray í Tyrklandi
„Þetta er ákvörðun sem ég tók til að fá nýja áskorun og ég mun útskýra þetta betur þegar rétti tíminn kemur,\" sagði Podolski á Instagram í dag.
Podolski spilaði með Arsenal frá 2012 til 2015 en hann hefur skorað 48 mörk í 128 landsleikjum með Þýskalandi á ferlinum.
Hér að neðan má bæði sjá Instagram færslu Podolski í dag sem og sjá hið frábæra stuðningsmannalag leikmannsins.

A post shared by Lukas Podolski (@poldi_official) on