Fotbolti.net
02.03.17 - 17:54
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Robert Menzel til ÍA (Staðfest)

Robert Mendzel við undirskriftina

Robert Mendzel við undirskriftina

Canon

Mynd: ÍA

ÍA hefur fengið til liðs við sig pólska hafsentinn Robert Menzel og gildir samningur Menzel út tímabilið.

Robert er 26 ára gamall og hefur spilað 70 leiki í efstu og næst efstu deild í Póllandi.

Síðast lék Robert með liði Podbeskidzie Bielsko-Biala í efstu deildinni í Póllandi.

Robert hefur verið á reynslu hjá ÍA síðastliðnar tvær vikur og ákvað ÍA að semja við þennan stóra og stæðilega hafsent.

Robert mun spila æfingaleik gegn HK á laugardag en vonast er eftir að Robert verði búinn að fá leikheimild með ÍA þegar liðið mætir ÍR laugardaginn 11. mars.

<i>„Mér líst mjög vel á þennan leikmann. Þetta er öflugur hafsent sem kemur með hæð inn í liðið og er vel spilandi á boltann. Þessi strákur kemur vel fyrir og ætti að henta okkar liði virkilega vel,\"</i> sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA um nýjasta liðsmann sinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.