Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 02. mars 2021 19:55
Aksentije Milisic
Ítalía: Birkir kom Brescia á bragðið í sigri
Mynd: Getty Images
Brescia og Cosenza áttust við í ítölsku B-deildinni í kvöld en spilað var í 26. umferð deildarinnar.

Birkir Bjarnason og Hólmbert Aron Friðjónsson byrjuðu báðir á varamannabekk Brescia í dag.

Birkir kom hins vegar inn af bekknum strax í hálfleik fyrir Nikolas Spalek og það tók hann ekki langan tíma að stimpla sig inn í leikinn.

Birkir kom heimamönnum í forystu strax á 49. mínútu eftir undirbúning frá Filip Jagiello. Florian Aye gulltryggði síðan sigur heimamanna seinna í leiknum.

Hólmbert spilaði fimmtán mínútur í kvöld og þá fékk Birkir gult spjald undir loks leiks. Brescia er núna í þrettánda sæti deildarinnar og spurning hvort gengi liðsins fari nú batnandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner