Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 02. mars 2021 14:30
Enski boltinn
„Joelinton ein verstu kaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar"
Joelinton fagnar einu af þremur mörkum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Joelinton fagnar einu af þremur mörkum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
Newcastle var til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolta.net í gær. Skjórarnir eru komnir í fallbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni eftir dapurt gengi að undanförnu.

Þar voru meðal annars rædd leikmannakaup Newcastle undanfarin ár.

„Joelinton var keyptur frá Hoffenheim á 40 milljónir punda sem eru ein alverstu kaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar," sagði Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle.

„Ég efast um að hann sé framherji því hann getur ekki neitt. Það var einfaldlega tekið seðlabúnt og kveikt í því þarna."

Joelinton kom til Newcastle sumarið 2019 en hann hefur skorað þrjú mörk í 58 leikjum í ensku úrvalsdeildinni síðan þá. Á þessu tímabili hefur hann skorað eitt mark í tuttugu leikjum.

Hér að neðan má hlusta á þátt gærdagsins en þar var meira rætt um leikmannamálin hjá Newcastle. Það eru Frumherji, White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
Enski boltinn - Everton, Newcastle og vondir stórleikir
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner