Serie A liðið Sampdoria hefur gefið það út að Covid-19 smit hafi greinst í herbúðum liðsins.
Liðið mætir Genoa í grannaslag á morgun klukkan 19:45 en ekki hefur komið fram hvort að leikmaður eða starfsmaður hjá félaginu hafi greinst.
Restin af hópnum mun nú þurfa að fylgja sóttvarnarreglum og sýna fram á annað neikvætt test, 24 tímum fyrir leikinn.
Fyrr í dag mætti lið Torino ekki til leiks gegn Lazio vegna sóttkvíar en alls tíu einstaklingar greindust þar með kórónuveiruna á dögunum. Það þýðir að liðinu mun vera dæmt 3-0 tap en það ætlar sér að áfrýja þeim dóm um leið.
Athugasemdir