„Annað sætið er vissulega betri árangur en við uppskárum í fyrra en ég hef í sjálfu sér ekki sterka skoðun á því hvernig fjölmiðlar stilla okkur upp í spágerðum sínum," segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, sem spáð er öðru sæti í Bestu deildinni á komandi tímabili.
„Ég hef trú á að deildin í ár verði mjög sterk og jöfn. Þess vegna get ég ímyndað mér að ykkur hafi reynst erfitt að raða liðunum upp í styrkleikaröð í aðdraganda mótsins."
„Ég hef trú á að deildin í ár verði mjög sterk og jöfn. Þess vegna get ég ímyndað mér að ykkur hafi reynst erfitt að raða liðunum upp í styrkleikaröð í aðdraganda mótsins."
Sáttur með þó krefjandi vetur
Undirbúningstímabilið hefur verið sérstakt hjá Blikum þar sem liðið spilaði í Evrópukeppni langt fram eftir vetri.
„Undirbúningstímabilið okkar hófst töluvert síðar en hjá öðrum liðum og hefur að vissu leyti markast af því," segir Óli.
„Heilt yfir er ég sáttur með veturinn þó hann hafi á sama tíma reynst okkur krefjandi. Við höfum verið óheppnir með meiðsli hjá nokkrum leikmönnum sem setur, eðli málsins samkvæmt, stærra strik í reikninginn á styttra undirbúningstímabili."
„Ég er þrátt fyrir það ánægður með veturinn þó okkur hafi skort stöðugleika í undirbúningsleikjunum. Við höfum sýnt góðar frammistöðu í hluta margra leikja en sömuleiðis dottið niður á alltof lágt plan. Fyrir vikið teljum við okkur vel meðvitaða um hvar við stöndum og hvað við þurfum að leggja áherslu á í aðdraganda mótsins."
Ekki er útilokað að Blikar muni styrkja hóp sinn meira. „Ef það koma upp tækifæri til að styrkja liðið þá munum við klárlega skoða þau en ég er mjög ánægður með leikmannahópinn okkar og líður vel með að fara inn í mótið með óbreyttan hóp."
Mjög spenntur fyrir sumrinu
Ólafur Ingi tók við Blikum seint á síðasta tímabili og er núna á leið inn í sitt fyrsta heila tímabil sem þjálfari liðsins.
„Ég er mjög spenntur fyrir sumrinu og mér líður einstaklega vel í Breiðablik, er stoltur af leikmannahópnum, ánægður með teymið mitt og það starfsumhverfi sem okkur er skapað," segir Óli.
„Það eru forréttindi að fá að starfa fyrir þetta frábæra félag og hjá okkur ríkir mikil eftirvænting og tilhlökkun fyrir sumrinu."
Markmiðin fyrir sumarið eru skýr.
„Markmið félagsins eru skýr. Við ætlum okkur að berjast um þá titla sem eru í boði," sagði Óli og bætti við að lokum:
„Við vonumst til að stuðningsmenn okkar fylki sér á bak við liðið í sumar. Þeirra stuðningur hefur gert gæfumuninn í gegnum tíðina og vonumst við til þess að stúkan verði meira eða minna full í sumar."


