Greint hefur verið frá áhuga Breiðabliks á Árna Vilhjálmssyni. Árni, sem er 31 árs, er uppalinn Bliki og er á mála hjá Sádi-arabíska liðinu Al-Taraji. Kona Árna, Sara Björk Gunnarsdóttir, spilar jafnframt í Sádi-Arabíu en er talið að parið sé á heimleið.
Fótbolti.net spurði Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, út í möguleikann að fá Árna.
Fótbolti.net spurði Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, út í möguleikann að fá Árna.
„Árni er flottur leikmaður sem er uppalinn Bliki. Það er klárt að hann komi upp í samtölum hjá okkur. Hann er klárlega nafn sem við höfum rætt. Síðan er hann bara í sínu prógrammi, þetta verður bara að skýrast og skoða síðar. Hann er úti í sádí allaveganna fram á sumar og það er bara staðan,“ segir Ólafur Ingi.
Samkvæmt Transfermarkt hefur Árni spilað 94 leiki í efstu deild hérlendis og skorað í þeim 39 mörk. Hann lék síðast með Breiðabliki sumarið 2021.
Valur hefur boðið í Kristófer Inga
Fótbolti.net greindi frá því í vikunni að Valur hefði boðið í Kristófer Inga Kristinsson, framherja Breiðabliks. Hann skoraði fimm mörk í tíu byrjunarliðsleikjum með Breiðabliki á síðasta ári og kom hann inn á tíu sinnum til viðbótar.
Er möguleiki að Kristófer fari?
„Ég get eiginlega ekkert sagt til um það. Það hefur verið áhugi á honum eins og á fleiri leikmönnum hjá okkur. Það er eins og gengur og gerist. Það er ekkert mikið hægt að ræða að neinu viti.“
Það var jafnframt greint frá því að Adam Ægir Pálsson hefði boðist í skiptum fyrir Kristófer, er það rétt?
„Það liggur meira hjá yfirmanni knattspyrnumála. Ég veit ekki hversu mikið er satt og rétt í þessu. Þetta er eitthvað sem er á milli félaganna og það er ágætt að það haldist þannig.“
Athugasemdir



