Fotbolti.net
02.06.16 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Alan Stubbs nýr stjóri Rotherham (Staðfest)

Stubbs stýrði Hibernian til sigurs gegn Rangers í úrslitaleik skoska bikarsins í maí. Þetta er í fyrsta sinn í 114 ár sem Hibernian vinnur bikarinn.

Stubbs stýrði Hibernian til sigurs gegn Rangers í úrslitaleik skoska bikarsins í maí. Þetta er í fyrsta sinn í 114 ár sem Hibernian vinnur bikarinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Alan Stubbs er 44 ára gamall og lék á sínum tíma yfir 350 leiki fyrir Bolton og Everton í enska boltanum.

Stubbs tók við Hibernian í Skotlandi árið 2014 og hefur gert frábæra hluti með félagið en er nú tekinn við Rotherham í óþökk eigenda Hibernian.
Stubbs vill reyna fyrir sér sem knattspyrnustjóri á Englandi en Hibernian vildi ekki leyfa honum að yfirgefa félagið.

Stubbs sagði því upp starfi sínu og er nú tekinn við Rotherham sem var níu stigum frá því að falla úr Championship deildinni á nýliðnu tímabili.

„Við höfum verið að fylgjast með Alan og John hjá Hibernian og erum í skýjunum með að hafa tryggt okkur undirskriftir þeirra,\" sagði Tony Stewart, eigandi Rotherham.

„Þetta er svekkjandi fyrir Hibs en við hjá Rotherham lítum á þetta sem frábært tækifæri. Svona virkar knattspyrnuheimurinn, ef þú stendur þig vel þá verðuru eftirsóttur.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.