Fotbolti.net
02.06.16 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Di Matteo tekur við Aston Villa (Staðfest)

Á að reyna að rífa Villa upp.

Á að reyna að rífa Villa upp.

Canon

Mynd: Getty Images

Roberto Di Matteo, fyrrum stjóri Chelsea, hefur verið ráðinn nýr stjóri Aston Villa.

David Moyes og Nigel Pearson voru einnig orðaðir við stöðuna en Di Matteo hefur nú tekið við.

Aston Villa endaði í langneðsta sæti í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu timabili og spilar í Championship deildinni næsta vetur.
Di Matteo stýrði síðast Schalke en hann hefur áður verið stjóri hjá Chelsea og WBA. Aðstoðarmaður hans verður Steve Clarke en þeir störfuðu áður saman hjá Chelsea.

Ráðningin þýðir að tveir stjórar í Championship deildinni á næsta tímabili hafa unnið Meistaradeildina á stjóraferli sínum. Di Matteo vann hana með chelsea árið 2012 og Rafa Benítez, stjóri Newcastle, vann Meistaradeildina með Liverpool árið 2005.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.