„Aðdragandinn var sá að ég meiddist síðasta sumar og þá sé ég að hlutirnir eru kannski ekki að fara ganga hjá AGF, erfitt fyrir báða aðila að sjá framtíð fyrir sér. Þá ákvað ég að það væri best fyrir mig að koma heim út af stöðunni sem ég var í. Ég er uppalinn Víkingur þannig að það var rökréttast fyrir mig akkúrat núna að fara aftur í Víkina," segir Sölvi Stefánsson sem var í síðustu viku tilkynntur sem nýr leikmaður Víkings.
Eins og varnarmaðurinn segir er hann uppalinn Víkingur en hann hefur verið í Árósum síðustu þrjú ár. Hann sleit krossband fyrir um ári síðan og styttist í að hann geti farið að spila aftur.
Eins og varnarmaðurinn segir er hann uppalinn Víkingur en hann hefur verið í Árósum síðustu þrjú ár. Hann sleit krossband fyrir um ári síðan og styttist í að hann geti farið að spila aftur.
„Ég var alveg með nokkur spennandi tilboð á borðinu, en svo var þetta bara alltaf Víkingur."
„Ég lít ekkert á þetta sem skref niður á við, mér líður mjög vel í Víkinni, liðið er á fáránlega góðum stað og ég er alveg viss um að Víkingur gæti verið að berjast í efri hlutanum í Superligunni (dönsku úrvalsdeildinni)."
„Staðan á mér er mjög góð myndi ég segja, ég er byrjaður að æfa án þess að fara í snertingu við aðra leikmenn. Það eru 2-3 mánuðir í að ég get farið aftur á fullt og spilað. Þetta verður klárlega ekki tímabilið sem fólk sér mig í mínu besta standi, ég mun örugglega þurfa smá tíma til að koma mér í leikform, en það er ekkert sem segir að ég megi ekki spila síðustu mánuðina á tímabilinu."
Sölvi er fæddur 2007, hann er hávaxinn leikmaður sem á að baki 24 leiki fyrir yngri landsliðin og hefur hann í þeim skorað eitt mark. Hann gekk í raðir AGF sumarið 2023 og í vor varð liðið danskur meistari í fyrsta sinn í mörg ár. Í viðtalinu, sem má sjá í spilaranum efst, ræðir Sölvi um lífið í Danmörku og sérstaklega um Tómas Óla Kristjánsson.
Hvert var planið áður en Sölvi meiddist?
„Ég var á mjög góðum stað, kominn mikið í kringum aðalliðið. Ég átti að byrja æfa með aðalliðinu fyrir síðasta undirbúningstímabil. Það var leiðinlegt að meiðast á þessum tíma, þetta átti að vera mitt ár, en svona er fótboltinn."
Er eitthvað plan að Sölvi fari mögulega á láni frá Víkingi í glugganum til að spila?
„Nei, ekki á þessu tímabili. Ég ætla koma mér í gang, svo sjáum við bara hvað gerist seinni hluta sumars."
„Auðvitað dreymir mig um að fara aftur út, það er stefnan. En ég er ekki með neinn tímaramma, ef það mun taka tvö ár, þá mun það taka þann tíma," segir Sölvi.























