Úsbekistan tilkynnti í dag 26 manna hóp sinn fyrir HM í sumar en liðið er í riðli með Kólumbíu, Portúgal og Kongó.
Hinn 22 ára gamli varnarmaður Abdukodir Khusanov hjá Manchester City er meðal nafna í hópnum en þegar hann kom til City í janúar í fyrra varð hann fyrsti Úsbekinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Hinn 22 ára gamli varnarmaður Abdukodir Khusanov hjá Manchester City er meðal nafna í hópnum en þegar hann kom til City í janúar í fyrra varð hann fyrsti Úsbekinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Úsbekistan er að fara að taka þátt í HM í fyrsta sinn en Fabio Cannavaro, sem varð heimsmeistari sem leikmaður Ítalíu 2006, er landsliðsþjálfari Úsbekistan.
Hann lék 47 leiki fyrir City á liðnu tímabili og hjálpaði liðinu að vinna FA-bikarinn og deildabikarinn á síðasta tímabili.
Landsliðshópur Úsbekistan
Markverðir: Utkir Yusupov (Navbahor), Abduvohid Nematov (Nasaf), Botirali Ergashev (Neftchi).
Varnarmenn: Rustam Ashurmatov (Esteghlal), Farrukh Sayfiev (Neftchi), Khojiakbar Alijonov (Pakhtakor), Sherzod Nasrullaev (Nasaf), Umar Eshmurodov (Nasaf), Abdukodir Khusanov (Manchester City), Abdulla Abdullaev (Dibba), Bekhruz Karimov (Surkhon), Jakhongir Urozov (Dinamo Samarqand), Avazbek Ulmasaliev (AGMK).
Miðjumenn: Otabek Shukurov (Baniyas), Jaloliddin Masharipov (Esteghlal), Odiljon Hamrobekov (Tractor), Oston Urunov (Persepolis), Jamshid Iskanderov (Neftchi), Dostonbek Khamdamov (Pakhtakor), Abbosbek Fayzullaev (Istanbul Basaksehir), Akmal Mozgovoy (Pakhtakor), Azizjon Ganiev (Al Bataeh), Sherzod Esanov (Bukhara).
Sóknarmenn: Eldor Shomurodov (Istanbul Basaksehir, á láni frá Roma), Igor Sergeev (Persepolis), Azizbek Amonov (Bukhara).
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


