Arda Guler hefur verið valinn í 26 manna hóp Tyrklands fyrir HM. Þessi 21 árs leikmaður fékk nýlega frammistöðuverðlaun ungs leikmanns frá UEFA fyrir tímabilið í Meistaradeildinni.
Guler, sem er 21 árs, skoraði tvö mörk og átti fjórar stoðsendingar fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni en liðið fór í 8-liða úrslit.
Guler, sem er 21 árs, skoraði tvö mörk og átti fjórar stoðsendingar fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni en liðið fór í 8-liða úrslit.
Ekkert kemur á óvart í tyrkneska hópnum sem Vincenzo Montella valdi fyrir mótið. Tyrkland er í D-riðli með Ástralíu, Paragvæ og Bandaríkjunum.
Tyrkneski hópurinn:
Markverðir: Altay Bayindir (Manchester United), Mert Gunok (Fenerbahce), Ugurcan Cakir (Galatasaray).
Varnarmenn: Abdulkerim Bardakci (Galatasaray), Caglar Soyuncu (Fenerbahce), Eren Elmali (Galatasaray), Ferdi Kadioglu (Brighton), Merih Demiral (Al-Ahli Saudi), Mert Muldur (Fenerbahce), Ozan Kabak (Hoffenheim), Samet Akaydin (Caykur Rizespor), Zeki Celik (AS Roma).
Miðjumenn: Hakan Calhanoglu (Inter Milan), Ismail Yuksek (Fenerbahce), Kaan Ayhan (Galatasaray), Orkun Kokcu (Besiktas), Salih Ozcan (Borussia Dortmund).
Sóknarmenn: Arda Guler (Real Madrid), Baris Alper Yilmaz (Galatasaray), Can Uzun (Eintracht Frankfurt), Deniz Gul (Porto), Irfan Can Kahveci (Kasimpasa), Kenan Yildiz (Juventus), Kerem Akturkoglu (Fenerbahce), Oguz Aydin (Fenerbahce), Yunus Akgun (Galatasaray).



