Thomas Partey er meðal leikmanna í ganverska landsliðshópnum fyrir HM. Partey jefur mikið verið í fréttum undanfarin ár þar sem hann hefur verið sakaður um nauðganir og kynferðisbrot af fjórum konum.
Partey er 32 ára fyrrum leikmaður Arsenal en hann leikur nú fyrir Villarreal á Spáni.
Hann er ákærður fyrir meint brot sem eiga að hafa átt sér stað 2020-2022. Dæmt verður í málum hans á næsta ári en hann hefur neitað sök.
„Thomas er varafyrirliði okkar. Hann er einn besti miðjumaður heims og við stöndum með honum," segir Kurt Okraku, forseti fótboltasambands Gana.

Carlos Queiroz er þjálfari Ganverja og hér að neðan má sjá hópinn sem hann valdi fyrir HM. Mohammed Kudus kantmaður Tottenham verður ekki með á mótinu en hann hefur verið á meiðslalistanum síðan í janúar.
Fyrsti leikur Gana á HM verður gegn Panama þann 17. júní en liðið mun svo mæta Englandi og Króatíu.
Markverðir: Benjamin Asare (Accra Hearts of Oak SC), Lawrence Ati-Zigi (St Gallen), Joseph Anang (St Patrick's Athletic).
Varnarmenn: Baba Abdul Rahman (PAOK), Gideon Mensah (Auxerre), Marvin Senaya (Auxerre), Alidu Seidu (Rennes), Abdul Mumin (Rayo Vallecano), Jerome Opoku (Istanbul Basaksehir), Jonas Adjetey (Wolfsburg), Kojo Oppong Peprah (Nice), Elisha Owusu (Auxerre), Derrick Luckassen (Pafos).
Miðjumenn: Thomas Partey (Villarreal), Kwasi Sibo (Real Oviedo), Augustine Boakye (Saint-Etienne), Caleb Yirenkyi (Nordsjaelland), Abdul Fatawu Issahaku (Leicester City).
Sóknarmenn: Kamaldeen Sulemana (Atalanta), Christopher Bonsu Baah (Al Qadsiah), Ernest Nuamah (Lyon), Antoine Semenyo (Manchester City), Brandon Thomas-Asante (Coventry City), Prince Kwabena Adu (Viktoria Plzen), Inaki Williams (Athletic Bilbao), Jordan Ayew (Leicester City).
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!