Félagaskiptaglugginn opnaði í gær og kvennalið KR var ekki lengi að bæta við sig leikmanni.
Nýi leikmaðurinn heitir Gloria Douglas og er hún frá Bandaríkjunum. Hún er framherji og lék hún með Virgina í háskólaboltanum í Bandaríkjunum á sínum tíma.
Hún er fædd árið 1992. Morgunblaðið segir frá því að hún hafi síðast leikið Sandviken í sænsku C-deildinni. Hún hefur einnig leikið í Noregi, Japan og á Norður-Írlandi. Þá á hún leiki að baki með yngri landsliðum Bandaríkjana.
KR er á botni Pepsi Max-deildar kvenna með fjögur stig. Næsti leikur liðsins er gegn Selfossi annað kvöld. Gloria er gjaldgeng í þann leik.
Athugasemdir