Miðjumaðurinn Valon Behrami hefur yfirgefið Udinese og gengið í raðir Sion í Sviss á tveggja ára samningi.
Behrami, sem á 83 landsleiki fyrir Sviss, kemur til Sion á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Udinese rann út.
Behrami, sem á 83 landsleiki fyrir Sviss, kemur til Sion á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Udinese rann út.
Behrami er 34 ára og hefur stærstan hluta ferilsins leikið á Ítalíu en hann er fyrrum leikmaður Genoa, Verona, Lazio, Fiorentina og Napoli.
Behrami hefur leikið fyrir Sviss á fjórum lokakeppnum HM.
Athugasemdir