Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 02. júlí 2019 15:06
Magnús Már Einarsson
Jökull Blængsson í Vængi Júpíters (Staðfest)
Jökull Blængsson.
Jökull Blængsson.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Vængir Júpíters hafa fengið markvörðinn Jökul Blængsson í sínar raðir á láni frá Fjölni.

Jökull er uppalinn hjá Fjölni en fyrri hlutann á þessu tímabili var hann í láni hjá Njarðvík þar sem hann kom þó ekki við sögu í Inkasso-deildinni.

Í fyrra var Jökull á láni hjá Haukum þar sem hann spilaði tólf leiki áður en hann fór út til Bandaríkjanna í nám.

Vængir Júpíters eru í 4. sæti í 3. deildinni en næsti leikur liðsins er gegn Skallagrími á föstudaginn.



Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner