Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 02. júlí 2019 08:56
Magnús Már Einarsson
Rafa Benítez ráðinn þjálfari Dalian Yifang (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez hefur verið ráðinn þjálfari Dalian Yifang í Kína en þetta var staðfest í dag.

Benítez hætti hjá Newcastle þegar samningur hans rann út um helgina en hann náði ekki samkomulagi við félagið um nýjan samning.

Þessi 59 ára gamli Spánverji fær ríkulega borgað í Kína og tvöfaldar laun sín.

Dalian Yifang hafnaði í 11. sæti í kínversku deildinni í fyrra en með liðinu leika meðal annars Marek Hamsik og Yannick Carrasco.

Sjá einnig:
Benítez með hjartnæmt bréf - Vildi vera áfram hjá Newcastle
Athugasemdir
banner
banner
banner