Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 02. júlí 2019 16:15
Magnús Már Einarsson
Tanguy Ndombele dýrastur í sögu Tottenham (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt miðjumanninn Tanguy Ndombele frá Lyon á 65 milljónir punda.

Tanguy er dýrastur í sögu Tottenham en fyrra metið var þegar félagið greiddi 42 milljónir punda fyrir varnarmanninn Davinson Sánchez í fyrrasumar.

Einungis eitt ár er síðan Lyon keypti Ndombele á sjö milljónir punda frá Amiens.

Hinn 22 ára gamli Tanguy krotaði undir fimm ára samning hjá Tottenham.

Stuðningsmenn Tottenham geta glaðst í dag því í morgun keypti félagið kantmanninn Jack Clarke kom frá Leeds. 517 dagar höfðu liðið frá síðustu kaupum Tottenham fyrir daginn í dag.



Athugasemdir
banner
banner
banner